Ef boðskortið birtist ekki rétt og án mynda er hægt að skoða það hérna.
FRAMANDLEIKI Nútímalandslag í ljósaskiltunum
BJARNI HELGASON OPNAR SÝNINGU Í LISTASAFNI BORGARNESS

Framandleiki

Listasafn Borgarness er staðsett í Safnahúsinu Bjarnarbraut 4–6 í Borgarnesi.

Safnið er opið frá 13–18 á mánud., miðvikud. og föstud. og frá 13-20 þriðjud. og fimntud.

Bjarni Helgason f. 1977
S. 822 3609
bjadddni@bjadddni.com

Menntun

MA í Media Arts frá Kent Institute of Art & Design 2004.

BA gráða í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands 2001.

Stúdent af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1998.

Störf

Sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður frá 2007.

Stundakennari við Listaháskóla Íslands frá 2004.

Grafískur hönnuður á Hvíta húsinu frá 2004 til 2006.

Grafískur hönnuður á 1001Nótt frá 2002 til 2003.

Grafískur hönnuður á Argus og Gullna hliðinu frá 1999 til 2002.

Samsýningar

Sequences 2007 - Innsetningin Mögnuð þögn sett upp í stigaganginum á Skúlagötu 26 - 12. - 21. október 2007.

Grafísk hönnun á Íslandi - Listasafn Reykjavíkur 15.október - 31.desember 2004.

MA sýning Kent Institute of Art & Design - Empire gallery London september 2004.

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands - Hús Listaháskólans í Laugarnesi maí 2001.

Einkasýningar

„Undir meðvitund II“ - Sólon, Reykjavík, janúar 2008.

„Undir meðvitund II“ - Gallerí TEMP, Reykjavík, ágúst 2007.

„Undir meðvitund II“ - Við árbakkann, Blönduósi, júlí 2007.

„Undir meðvitund“ - Næsti bar gallerí, Reykjavík, 14. október – 10. nóvember 2006.

„Ostranenie - sjónræna tónræna“ - Thorvaldsen, Reykjavík, febrúar 2006.

„Ljósmyndlist II“ - Vivaldi, Borgarnesi, mars 2002.

„Ljósmyndlist I“ - Listahátíðin á Seyði, Seyðisfjörður, júní 2001.

„Ljósmyndlist I“ - Við árbakkann, Blönduósi, maí 2001.

 



Það væri mér mikill heiður ef þú sæir þér fært að mæta á opnun mína í Listasafni Borgarness laugardaginn 2. febrúar næstkomandi kl. 16.00.

Bjarni Helgason

FRAMANDLEIKI Nútímalandslag í ljósaskiltunum

Á sýningunni eru 6 prentuð verk í 1.5 x 1 m ljósakössum. Verkin eru unnin á síðustu árum, þau elstu frá árinu 2004 og þau yngstu frá þessu ári.

Verkin eru nútímalandslagsmyndir en í þeim er leitast við að gera hið hversdagslega framandi og það kunnuglega spennandi með því beina sjónum áhorfandans að borgarlandslaginu sem líður hjá okkur án þess að við veitum því eftirtekt. Markmið verkanna er meðal annars að þröngva áhorfandanum til þess að sjá umhverfi okkar í nýju ljósi með því að slíta tengingu myndefnisins við upprunann.

Verkin eru unnin úr skjámyndum úr myndskeiðum. Annars vegar myndskeið sem tekin eru á ferð og hins vegar af viðfangsefnum sem hreyfast. Skjámyndunum er síðan raðað saman eftir reglum nauhyggjunar þar sem einfaldleiki, endurtekningar, taktur og hljómræn heild eru markmið myndsköpunarinnar.

Allar upplýsingar hjá Bjarna í síma 822 3609 og bjadddni@bjadddni.com

 

UNDIR MEÐVITUND Á SÓLON 12. JANÚAR TIL 8. FEBRÚAR

Ég bendi líka á að nú stendur yfir sýning mín á Kaffi Sólon. Þar sýni ég 12 prentverk úr Undir meðvitund myndröðinni.
Kaffi Sólon er opið alla daga frá kl. 11.00.


Allir velkomnir.

Verkin eru unnin á síðustu árum upp úr skissum úr enskri vasaorðabók. Hugmyndin er að búa til óhlutbundin myndverk innblásin af einu orði sem er efst á þeirri síðu sem teiknað er á í orðabókinni, gera þannig orðið að mynd. Aðferðin sem notast er við er byggð á kenningum súrrealistana um að ná í myndheim djúpt í undirmeðvitundina með því undirbúa sig andlega undir hvert verk. Fyrst hreinsa hugann, velja síðu af handahófi og byrja strax á teikna án þess að hugsa. Setja þannig niður á blað það fyrsta sem kemur í hugann án þess að láta hugsun koma að máli. Þannig verður penninn bein framlenging á hugmyndafluginu. Myndin þróast svo áfram með því að treysta á tilfinninguna eina en ekki hugsanir eða rök, reglur eða hefðir.